Falleg 4ra herbergja raðhúsaíbúð í 3ja íbúða húsi með sambyggðum bílskúr og um 100 m² tvískiptri steyptri suður verönd. Eignin telur samtals 165,0 m² og þar af telur bílskúr 38,2 m²
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, tvö baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og bílskúr auk geymslulofts.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Hol er með flísum á gólfi.
Stofan er opin og björt með parketi á gólfi og þar eru loft tekin upp. Útgangur er úr stofu til suðurs út á steypta verönd.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og snyrtilegri hvítri háglans innréttingu með dökkum flísum á bekkjum. Góður borðkrókur og þaðan og er útgangur á steypta verönd til norðurs.
Svefnherbergin eru þrjú og í þeim öllum eru fataskápar. Í tveimur herbergjum eru spónlagðir eikarskápar en í hjónaherbergi er stórir skápar, hvítir og með gleri. Úr hjónaherbergi er útgengt á steypta verönd til suðurs.
Baðherbergin eru tvö, eitt innan íbúðar og hitt í bílskúr. Aðalbaðherbergið er flísalagt, bæði gólf og veggir og þar er búið að endurnýja skápa og innréttingu. Baðkar er með sturtutækjum, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Baðherbergið í bílskúrnum er einnig flísalagt og þar er sturta. Í báðum baðherbergjum eru upphengd salerni.
Þvottahús er með flísum á gólfi og þar er ljós fataskápur.
Bílskúrinn er flísalagður og þar er lítil innrétting með vaska, ágætt vinnurými og baðherbergi. Gönguhurð er frá bílastæðinu á norðurhlið og einnig út á steypta verönd sunnan við skúrinn. Rafknúinn hurðaopnari er á innkeyrsluhurð.
Rúmgott geymsluloft er yfir íbúðinni og uppá það er farið um lúgu í forstofu.
Lóðin er mjög snyrtileg. Framan við húsið eru tvö steypt bílastæði og snjóbræðsla er í stæðinu fyrir framan bílskúrinn sem og í stétt við hús og að aðalinngangi. Framan við húsið er einnig steypt sorptunnuskýli og fánastöng. Sunnan við húsið er stór steypt verönd með skjólveggjum í kring. Heitur pottur er á pallinum og geymsluskúr auk geymslurýmis fyrir garðhúsgögn og grill.
Annað- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Varmaskiptir er á neysluvatningu.
- Innfelld lýsing í þakskyggni.