Draupnisgata 4 eign 104 - Vel staðsett atvinnuhúsnæði, norðaustur endi - stærð 96,1 m² auk millilofts. Eignin skiptist í rúmgóða sal með snyrtingu og milliloft sem er yfir hluta.
Salurinn er með lökkuðu gólfi og góðri lofthæð. Stór innkeyrsluhurð og sér gönguhurð.
Salurinn er tæpir 13 metrar á breidd og um 7,5 metrar á dýpt.
Milliloft er yfir hluta og er timbur stigi upp á það. Loftið skiptist í tvö rými sem bæði eru með glugga inn í salinn.
Annað- Sér hitaveitumælir og sér rafmagnsmælir.
- 3ja fasa rafmagn.
- Lóðin er skráð 2.263 m² og er í sameign.
- Bílalyfta, vinnuborð o.fl er í eigu leigjanda og fylgir ekki með við sölu.
- Eignin er í einkasölu