** Eignin er seld með fyrirvara **
Espilundur 3 - Vel skipulagt og bjart 6 herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr á Brekkunni - Stærð 169,4 m².
Mjög vel staðsett eign, stutt er í leik- og grunnskóla sem og íþróttasvæði KA.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Forstofa, eldhús, stofa, skáli, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, búr/geymsla og bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er opið og bjart, þar er ljós innrétting með eyju með stein á borðum. Gashelluborð er í eyju, ofn í vinnuhæð og pláss í innréttingu fyrir tvöfaldan ísskáp. Góður borðkrókur er í eldhúsi. Flísar á gólfi
Stofa er einkar rúmgóð og með gluggum til austurs og vesturs, parket er á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóra og skjólgóða timburverönd er snýr til suðurs.
Skáli er í opnu rými með eldhúsi, þar er sjónvarsphorn í dag og flísar á gólfi. Áður var þar svefnherbergi og væri lítið mál að setja upp herbergi þar.
Svefnherbergin eru þrjú talsins og eru þau öll á svefnherbergisgangi, tvö eru með fataskáp og eru þau öll með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með góðri innréttingu, upphengdu wc, baðkari með sturtutækjum og glervæng og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús er innaf eldhúsi og er þar lítið búr/geymsla, innrétting fyrir þvottavél og snúrur til að hengja upp.
Bílskúr er í dag nýttur sem svefnherbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi og rúmgóð geymsla með hillum.
Annað:- Geymsluskúr á lóð fylgir.
- Hellulagt bílaplan með hitalögnum.
- Markísa á palli fylgir með við sölu.