Laugarvegur 39 íbúð 101 - 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli með bílskúr - stærð 120,0 m² þar af telur bílskúr 23,9 m²
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamningEignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús og geymsla eru í sameign, á stigapalli fyrir framan íbúðina.
Forstofa og hol eru með ljósu plast parketi á gólfi og tvöföldum fataskáp
Eldhús: Ljós viðar innrétting með flísum á milli skápa og ljóst plast parket á gólfi.
Stofa er með ljósu plast parketi á gólfi, gluggum til tveggja átta og hurð út á rúmgóðar steyptar svalir til suðurs og austurs.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með dúk á gólfi og eitt með fataskáp.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar á gólfi og hluta veggja, spónlögð eikar innrétting, upphengt wc, baðkar með sturtutækjum og nýlegur opnanlegur gluggi.
Þvottahús og geymsla eru í sameign á stigapalli fyrir framan íbúðina. Hillur eru í geymslunni.
Bílskúr er skráður 23,9 m² að stærð. Þar er lakkað gólf, hillur, vaskur og rafdrifin opnari á innkeyrsluhurð.
Eignin selst í því ástandi sem hún er í og mun seljandi ekki gera neinar endurbætur á henni fyrir sölu. Væntanlegum kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga og jafnvel með aðstoð fagmanna.