Hvammur Eignamiðlun 466 1600 [email protected]
Ath. skipti á minni eign á Akureyri
EinkasalaTil sölu 5-6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum á horni Steintúns og Hringtúns á Dalvík. Húsið er skráð 146,5 m², steypt og klætt að utan með timbri. Auk þess var byggður við húsið sólskáli sem er um 25 m² að stærð. Eignin er því 171,5 m²
Byggingarár hússins er 1983. Sér bílastæði er austan við húsið.
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti:
Neðri hæð: Forstofa, gangur, eldhús, stofa, sólstofa, eitt svefnherbergi, snyrting, þvottahús og geymsla.
Efri hæð: Sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Í forstofu og á snyrtingu eru flísar á gólfi.
Í eldhúsi eru flísar á gólfi, viðar innrétting með máluðum hurðum.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem loft eru að hluta tekin upp og klædd með panil.
Úr stofu er hurð inn í sólskála sem er um 25 m², með flísum á gólfi og gólfhita. Rennihurð er úr sólskála út á timbur verönd.
Þvottahús er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu og hurð út.
Snyrting er flísalögð.
Sjónvarpshol er með flísum á gólfi og panil á hluta veggja og í lofti. Úr sjónhvarpsholi er hurð út á steyptar suður svalir.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með plastparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, dökk innrétting, wc, handklæðaofn, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi.
Í húsinu eru tvær geymslur, gólf er lakkað.