Hvammur Eignamiðlun 466 1600 [email protected]
Rúmgott verslunarhúsnæði á jarðhæð í miðbæ Akureyrar samtals 334,3 m² að stærð. Húsnæðið er í innra rými Amarohússins og er auk þess með sýningarglugga fram við götu og geymslur í kjallara.
Verslunin sjálf er í syðsta hluta hússins og nær frá götunni og innúr. Eignin er að mestu eitt opið rými en er skráð á þrjú fastanúmer og því auðvelt að skipta henni upp í minni einingar.
Gott aðgengi er að rýminu frá syðri inngangi Amarohússins og er það skilið frá sameigninni með glerveggjum. Gott geymslupláss/lager er í kjallara.
Kaffistofa og starfsmannaaðstaða er í sameign með öðrum eignahlutum á jarðhæðinni.
Hér er frábært tækifæri til að eignast gott atvinnuhúsnæði á jarðhæð í miðbæ Akureyrar.