Furulundur 2e - Góð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 122,0 m²Eignin skiptist með eftirtöldum hætti:
Neðri hæð, 60,2 m²: Forstofa, þvottahús, snyrting, geymsla, eldhús og stofa.
Efri hæð, 61,8 m²: Hol, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús er með tvílitri spónlagðri og sprautulakkaðri innréttingu með flísum milli skápa og dúk á gólfi.
Stofa er rúmgóð, með plast parketi á gólfi og stórum suður gluggum og hurð út á rúmgóða timbur verönd. Opið er á milli stofu og eldhúss.
Hol á efri hæð er með plast parket á gólfi og teppi er á stiga milli hæða.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi með plast parketi á gólfi þar af eitt með góðum fataskáp og hjónaherbergi með fataherbergi innaf og hurð út á steyptar suður svalir.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, ljós sprautulökkuð innrétting, upphengt wc, sturta, baðkar, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Snyrting er með flísum á gólfi og hluta veggja, upphengdu wc og handlaug.
Þvottahús er við hliðina á forstofu. Þar eru flísar á gólfi, hvít innrétting og hurð út.
Geymsla er undir stiga, þar er lakkað gólf.
Annað- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Búið er að endurnýja rafmagnstengla.
- Rúmgóð verönd er yfir allri baklóðinni
- Þak málað 2020