Ólafsvegur 34 íbúð 302 Ólafsfirði - Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3.hæð (efstu) í fjölbýli - stærð 77,7 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Forstofa er með dúk á gólfi og tvöföldum skáp.
Eldhús: Ljós L-laga innrétting með stæði fyrir ísskáp í innréttingu. Dúkur á gólfi og hurð út á steyptar svalir.
Stofa er dúk á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dúk á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með dúk á gólfi, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Þvottahús/geymsla er með dúk á gólfi, hillum og opnanlegum glugga.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.