Steinahlíð 5b - Góð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á vinsælum stað í Glerárhverfi - stærð 129,2 m²Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð 64,6 m²: Forstofa, þvottahús, snyrting, eldhús og stofa.
Efri hæð 64,6 m²: Sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum skáp. Nýleg útidyrahurð.
Eldhús er með hvíttaðri eikar innréttingu með flísum á milli skápa og kork á gólfum. Stæði er fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingunni. Rúmgóður borðkrókur.
Stofa er með kork á gólfi, stórum suður gluggum og hurð út á timbur verönd.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi með dúk á gólfi og eitt með fataskáp og hjónaherbergi með stórum fataskáp og hurð út á flísalagðar suður svalir.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, spónlögð eikar innrétting, upphengt wc, baðkar, sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Innfelld lýsing í loft og hiti í gólfi.
Snyrting er með flísum á gólfi, eikar innréttingu og upphengdu wc. Hiti er í gólfi.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi. Þar er lúga upp á loft.
Þvottahús er við hliðina á forstofu. Þar eru flísar á gólfi, hvít innrétting og nýleg útidyrahurð.
Annað- Eikar innihurðar
- Sér geymsla er í kjallara.
- Góð timburverönd er á baklóðinni, snýr til suðurs.
- Húsfélagið á og rekur sláttuvél og orf.
- Húsið var múrviðgert og málað að utan sumarið 2018