Aðalgata 11 - Mikið endurnýjað 6-7 herbergja eign, tvær hæðir og ris og með innbyggðum bílskúr á skemmtilegum stað á Siglufirði - stærð 235,2 m²
Eign sem skráð er sem einbýli en er sambyggt tveimur öðrum húsum - möguleiki er að útbúa útleigueiningu með sér inngangi á jarðhæðinni. Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Neðri hæð: Forstofa, bílskúr, eitt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og opið rými/tómstundarherbergi.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi, stofa, borðstofa, eldhús og baðherbergi.
Ris: Tvö svefnherbergi.
Forstofa er með flísum og á gólfi og þaðan er teppalagður stigi upp á hæðina. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Eldhús, snyrtileg dökk innrétting og flísar á gólfum. Ísskápur með fyrsti er innbyggður í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Útgangur er úr eldhúsi út á rúmgóðar timbur svalir / verönd til suðurs.
Stofa og borðstofa eru með með nýlegu harð parketi á gólfi.
Baðherbergin eru tvö. Aðalbaðherbergið er á efri hæðinni og er flísalagt bæði gólf og veggir, með hvítri innréttingu og skáp, handklæðaofni, upphengdu wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Baðherbergi á neðri hæð er flísalagt bæði gólf og veggir, með ljósum efri skáp, handlaug, wc og sturtu. Bæði baðherbergin eru endurnýjuð.
Svefnherbergin eru fimm. Eitt á jarðhæðinni, tvö á efri hæð og tvö í risi. Nýlegt harð parket er í öllum herbergjunum. Í hjónaherbergi er laus fataskápur sem fylgir með við sölu.
Opið rými / tómstundarherbergi er á jarðhæðinni með flísum á gólfi og gólfhita, kynnt með affalli af húsinu. Þar er sér inngangur og því möguleiki að útbúa útleigueiningu.
Þvottahús er með lökkuðu gólfi og þaðan er útgangur út á baklóð.
Bílskúr er
með glær lökkuðu gólfi og rafdrifinni innkeyrsluhurð. Inn af bílskúrnum er lítil geymsla. Bílskúrinn er um 18 m² að stærð.
Annað- Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum s.s. gluggar og gler, vatns- og raflagnir, innréttingar bæði eldhús og baðherbergi, gólfefni og innihurðar.
- Ný einangrun í ris, lagðar nýjar raflagnir og settir nýjir hitaveituofnar.
- Búið er að klæða húsið að utan
- Eignin er í einkasölu