Vel skipulögð 4ra herbergja parhúsaíbúð á einni hæð við Melgötu 8 við Stóru-Tjarnir í Ljósavatnsskarði - 98,9 m² að stærð.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og þvottahús/geymslu.Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofan er með parketi á gólfi og úr henni er útgangur í garð.
Eldhúsið er með parketi á gólfi og spónlagðri eikarinnréttingu.
Baðherbergið er flísalagt og þar er spónlögð eikarinnrétting, baðkar með sturtutækjum og hengi, opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Þvottahús og geymsla er innaf forstofu.
Annað- Húsið er timburhús á steyptum grunni og steyptri gólfplötu.
- Húsið er tengt við hitaveitu, og hitalagnir eru í sökkli hússins (sökkulhiti en ekki gólfhiti).
- Fallegt umhverfi - stutt í skólann við Stjóru-Tjarnir og þar er jafnframt sundlaug.
- 20 mínútna akstur til Akureyrar um Vaðlaheiðargöng.