Skarðshlíð 36e - Rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð (efstu) í góðu fjölbýli í Glerárhverfi - stærð 110,8 m²Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa er með flísum á gólfi og á ganginum er nýlegt harð parket og tvöfaldur skápur.
Eldhús, hvít sprautulökkuð innrétting með flísum á milli skápa og harð parket á gólfi. Ágætur borðkrókur.
Stofa er mjög rúmgóð og með stórum suður gluggum. Á gólfi er nýlegt harð parket.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með harð parketi á gólfi og fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á steyptar suður svalir.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu. wc og baðkari með sturtutækjum.
Þvottahús er inn af eldhúsi, þar eru flísar á gólfi, bekkur með stálvask og opnanlegur gluggi.
Geymsla er inn af þvottahúsi, þar er dúkur á gólfi og hillur.
Annað- Á jarðhæðinni við inngang er sér skóskápur/geymsla
- Snyrtileg sameign
- Búið er að endurnýja gler í stofu og hjónaherbergi
- Skemmtilegt útsýni er úr íbúðinni.