Kjalarsíða 16F - Rúmgóð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð í norðurenda á 2.hæð í góðri svalablokk í Síðuhverfi - stærð 101,7 m²Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla er í kjallaranum.
Forstofa er flísalögð og með stórum skáp.
Eldhús, hvít innrétting með dökkri bekkplötu og hvítum flísum á milli skápa. Ágætur borðkrókur með glugga til vesturs. Hvíttað harð parket á gólfi.
Stofa er björt, með gluggum til tveggja átta og plast parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á steyptar vestur svalir.
Hol er ágætlega rúmgott og með plastparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvít málaðri innréttingu, wc og baðkari með sturtutækjum.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með plastparketi á gólfi og tvö með fataskápum.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Þar eru flísar á gólfi og opnanlegur gluggi.
Sér geymsla er í kjallaranum.
Annað:- Nýlegar þakrennur
- Húsið málað og múrviðgert árið 2018
- Búið er að endurnýja glugga og gler á norðurhliðinni.
- Ljósleiðari er tengdur
- Stór sameiginleg geymsla í kjallara.
- Eignin er í einkasölu