Eyrargata 27 - 4ra herbergja neðri hæð með sér inngangi í tvíbýlishúsi á Siglufirði - stærð 66,7 m²
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamningEignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Forstofa, gengið er inn um sér inngang á norðurhlið hússins og þar eru flísar á gólfi. Nýleg útidyrahurð.
Eldhús er með nýlegu harð parketi á gólfi og ljósri innréttingu með flísum á milli skápa. Ný eldavél og nýr vaskur og blöndunartæki.
Stofa er með nýlegu harð parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með nýlegu harð parketi á gólfi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar á gólfi, tvílit innrétting, eik og hvít, wc og sturtuklefi.
Geymsla er innaf baðherberginu og þar er hitaveitugrindin. Gólf er lakkað.
Annað- Húsið var málað að utan sumarið 2020
- Íbúðin hefur verið þónokkuð endurnýjuð, nýleg gólfefni, innihurðar, útidyrahurð, nýtt baðherbergi o.fl.
- Efri hæðin er einnig til sölu og því möguleiki að eignast allt húsið
- Eigandi skoðar skipti á eign á Akureyri