Ægisgata 10b - Ágætt iðnaðarhúsnæði á 700 m² lóð með með mjög góðri aðkomu - stærð 88,4 m²Húsið er timburhús sem áður var í rekin bensínstöð.
Eignin skiptist í tvo iðnaðarrými, snyrtingu og kaffistofu.
Tvær gönguhurðar eru inn í eignina.
Dúkur er á gólfum og hvít innrétting í kaffistofu.
Í öðrum iðnaðarrýminu er vinnuborð og nýlegur blástursofn.
Búið er að styrkja burðargrind og einangra og klæða 3 af 4 hliðum hússins að utan.
Búið er að endurnýja allar vatnslagnir og setja upp nýja hitaveitugrind.
Möguleiki er að koma fyrir innkeyrsluhurð og þannig auka notagildi eignarinnar.