Kjarnagata 35 íbúð 201 - Falleg 3-4 herbergja endaíbúð (austur endi) með sérinngangi af svölum í fjölbýli með lyftu í Naustahverfi - stærð 96,7 m²Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús og stofu í alrými, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, tvö svefnherbergi, geymslu innan íbúðar sem nýtist sem herbergi og sérgeymslu á jarðhæðinni.
Forstofa og gangur eru með flísum og parketi á gólfi. Góður fataskápur er á ganginum.
Eldhús, vönduð spónlögð eikar innrétting með flísum á milli skápa. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Borðkrókur með glugga til austurs.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, þar er parket á gólfum, gluggar til tveggja átta og hurð út á steyptar svalir, skráðar 10 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö og bæði með parketi á gólfi. Hjónaherbergið er með fataherbergi en í barnaherbergi er spónlagður eikar fataskápur.
Geymsla innan íbúðar er með parketi á gólfi og opnanlegum glugga og nýtist sem svefnherbergi í dag.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, með spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Stæði er í innréttingunni fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sérgeymsla, skráð 3,5 m² að stærð er á jarðhæðinni ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Annað- Lyfta er í húsinu
- Allar innréttingar eru spónlagðar með eik.
- Eikar parket er á öllum gólfum að baðherbergi undanskildu, þar eru flísar.
- Gólfhiti er í íbúðinni.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Eignin er í einkasölu