** Eignin er seld með fyrirvara **
Karlsbraut 20 Dalvík - Vel skipulögð 3ja herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr og 50% hlutdeild í gróðurhúsi - Heildarstærð 145,9 m²Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi. Teppalagður steyptur stigi er upp í íbúðina.
Eldhús, filmuð eldri innrétting með flísum á milli skápa og á bekkplötu. Ágætur borðkrókur með glugga til vesturs. Gólf er með ljósum flísum.
Gangur er með parketi á gólfi og tveimur skápum. Við endan á ganginum er gengið út á steyptar og flísalagðar suðvestur svalir.
Stofan er með parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru tvö, bæði ágætlega rúmgóð ogmeð parketi á gólfi. Í hjónaherbergi eru hvítir fataskápar.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, handlaug og efri skápur, wc, handklæðaofn, hornbaðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Lúga er í loftinu upp á loftið.
Bílskúrinn er skráður 40,2 m² að stærð og er með lökkuðu gólfi. Rafdrifin innkeyrsluhurð og tvær gönguhurðar. Aðstaða er í bílskúrnum fyrir þvottavél.
Hitalagnir eru í bílaplani, kynntar með affalli af húsi.
Á baklóðinni er
gróðurhús með steyptu gólfi sem eignin á 50% hlutdeild í.
Annað- Þak var yfirfarið og málað fyrir um 5 árum.
- Steypt loftaplata.
- Eignin er í einkasölu