Knútsstaðir, Aðaldal - 3ja herbergja sumarbústaður í landi Knútstaða í Aðaldal - Stærð 61,6m².Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi og geymslu.
Forstofa er með spónarparket á gólfi.
Eldhús er með ljósri innréttingu og borðplötu úr beyki, þar er gashelluborð, vaskur og pláss fyrir lítinn ísskáp. Spónarparket á gólfi
Stofa er í opnu rými með eldhúsi, þar er spónarparket á gólfi, úr stofu er gengið út í sólskála.
Sólskáli er með dúk á gólfi, úr honum er útgengt útá timburverönd.
Svefnherbergin eru tvö og eru bæði með opnum fataskápum. Plastparkert er á gólfi herbergja.
Svefnloft, úr stofu er stigi uppá svefnloft, þar er plasparket á gólfi.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, baðkari með glervæng og wc. Dúkur er á gólfi og hluta veggja.
Geymsla er við inngang, þar eru vegghillur.
Bústaðurinn er í ágætu ástandi en þarfnast nokkurs viðhalds
Stór timburverönd í kringum húsið.
Húsið stendur á fallegum og gróðursælum stað - 2.500 m² leigulóð.
Árleg lóðarleiga er kr. 90.000.-