Hringtún 34, 620 Dalvík
84.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
261 m2
84.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
4.110.000

Hringtún 34 á Dalvík – Skemmtilega hannað rúmgott einbýli á tveimur hæðum í byggingu sem verður til afhendingar samkvæmt samkomulagi.  6 herbergja einbýli með bílskúr og bílskýli– stærð 260 m²
Lóðin er 859,6 m² að stærð.


Húsið afhendist fullbúið að utan með steyptu bílaplani, steyptum stéttum og þökulagðri lóð. Að innan verður húsið tilbúið til málningar og spörslunar.
Húsið er timbureiningahús á steyptri plötu og með einhalla þaki.  Húsið verður klætt að utan með dökkri viðarklæðningu.

Innra skipulag eignar er skv. teikningum eftirfarandi:
Neðri hæð
skiptist í forstofu, bílskúr, fjölskyldurými, svefnherbergi, tvö baðherbergi og þvottahús.  Framan við bílskúr verður opið bílskýli.
Efri hæð skiptist í eldhús og stofu í alrými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.  Rúmgóðar svalir verða ofan á bílskýli.
 
Húsið er tveggja hæða með aðkomu að neðri hæð þess.  Aðkoma að lóð er að austurhlið um Hringtún og vestan við húsið er opið svæði til fjalls.  Lóðin hallar töluvert frá vestri til austurs innan lóðarinnar.  Bílastæði er framan við húsið undir bílskýlisþaki. Skyggni er yfir stétt sem liggur að aðalinngangi. Við suðurhlið er verönd með aðgengi úr fjölskylduherbergi og við norðurhlið er stétt meðfram húsinu og hliðarinngangur í bílskúr hússins.
Komið er inn í anddyri hússins fyrir miðju húsi og þar er stigahús upp á efri hæð beint af augum en hægra megin er aðgengi að bílskúr en til vinstri er aðgengi að fjölskylduherbergi, geymslu og baðherbergi. Þegar gengið er uppstiga að efri hæð er komið inn í alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Inn af eldhúsrými eru tvö svefnherbergi við vesturhlið hússins en í suð-vesturhorni hæðarinnar er stuttur gangur að hjónaherbergi og baðherbergi. Útgengt er úr baðherbergi og gangi að verönd efri hæðar við vesturhlið hússins. 
Rými á neðri hæð býður upp á ýmsa möguleika og t.d. væri auðvelt að útbúa útleigueiningu á neðri hæð.
 
Húsið er létt timburhús á steyptum grunni og gólfplötu. Bakveggur neðri hæðar liggur að öllu leyti að fyllingu baklóðar og er því steinsteyptur, járnabundin veggur. Þá eru veggir um baðherbergi beggja hæða einnig steinsteyptir og tengdir bakvegg neðri hæðar. Allir aðrir útveggir og þak eru léttir timburútveggir (grindarveggir) með steinullareinangrun. Þak er hefðbundið einhalla sperruþak með 220 mm steinullareinangrun milli sperra og krosslektun í loftbili.
Veggir: Útveggir sem og innveggir eru einangraði milli stoða með 150 mm steinullareinangrun.
Sökklar og sökkulveggir eru steinsteyptir og einangraðir með 50 mm frauðplasti.
Gólfplata er úr 120 mm steinsteypu og einangruð að neðan með 100 mm plasteinangrun.
Gluggar og hurðir: Gluggar og útihurðar eru út timbri með ál-veðurkápu.
Raflagnir:  Búið verður að draga í allt og ganga frá rafmagnstöflu, búið verður að draga í fyrir útiljósum.
Upphitun:  Gólfhitalagnir eru steyptar í gólfplötu neðri hæðar og á efri hæð verður ofnakerfi.  Snjóbræðsla verður í steyptu bílaplani og steyptum veröndum en ótengd.  Hitaveitugrind verður klár og gólfhitakista verður frágengin og gólfhiti tengdur á neðri hæð og ofnalagnir komnar upp á efri hæð (engir ofnar).   
Frárennslislagnir í grunni og utanhúss eru PVC plastpípur en innanhúss eru notaðar PP plastpípur. Þakniðurföll eru 70 mm plaströr (PP) sem koma utan á útvegg.

Þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar og eru ekki endilega nákvæm endurgerð aðalteikninga.
Kaupandi greiður skipulagsgjald þegar það verður lagt á,  0,3% af brunabótamati eignar.
Seljandi skoðar að taka minni eign uppí.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.