Hvammshlíð 11 - Vel við haldið einbýlishús á tveimur hæðum með sex svefnherbergjum á góðum stað í Glerárhverfi. - Stærð 314 m². Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Hæð 138,4 m²: Tvær forstofur, eldhús, stofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, hol og geymsla.
Kjallari 139,6 m² : Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, og geymsla.
Geymsla, 36 m².Hæðin:Forstofurnar tvær eru flísalagðar, í annarri þeirra er opið fatahengi en úr hinni er gengið niður í kjallara hússins, inn af henni er einnig lítil geymsla.
Eldhús er með nýlegri eikarinnréttingu með dökkri borðplötu og flísum milli skápa, dökkt harðparket er á gólfi.
Stofa er mjög rúmgóð og er opið úr eldhúsi inn í stofuna, þar er dökkt harðparket á gólfi og gólfsíðir gluggar er snúa í suður. Úr stofu er gengið út á stóra timbuverönd með heitum potti.
Svefnherbergin eru þrjú, og eru öll rúmgóð með ljósu plastparketi á gólfum og fataskápar í tveimur. Hjónaherbergi er með sér snyrtingu.
Baðherbergi er, með ljósri innréttingu og walk-in sturtu með glervængjum, wc er upphengt. Flísar eru á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi.
Hol er parket lagt og er þar eldstæði.
Samkvæmt teikningu eiga að vera fjögur svefnherbergi á hæðinni og fjölskyldurými þar sem hol er í dag. Herbergin eru í dag þrjú talsins og hafa þau verið stækkuð á kostnað fjölskyldurýmis.
Kjallari:Þrjú
svefnherbergi eru í kjallara, öll eru með plastparketi á gólfi.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, sturtu og wc, flísar eru á gólfi og veggjum.
Eldhús er með ljósri innréttingu og barborði, flísar eru á gólfi og veggjum að hluta.
Geymsla, er mjög rúmgóð, en þar er ekki full lofthæð.
Undir stiga hefur verið komið fyrir tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Samkvæmt teikningu á þvottahús að vera þar sem eldhús er í dag.
Annað:
- Búið er að steypa 36 m² geymslu og gert er ráð fyrir bílskúr ofan á henni.
- Mögulegt væri að útbúa útleigueiningu í kjallara með sérinngang.
- Bílaplan er upphitað.
- Ljósleiðari er kominn inn í hús.
- Eigendur skoða skipti á minni eign, raðhúsi eða einbýli á brekkunni.