Brekkugata 7, 600 Akureyri
114.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
9 herb.
250 m2
114.000.000
Stofur
3
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
4
Inngangur
Sér
Byggingaár
1903
Brunabótamat
85.750.000
Fasteignamat
52.090.000

Brekkugata 7 í miðbæ Akureyrar sem skráð er á tveimur fastanúmerum en skipt hefur verið upp í fjórar útleigueiningar - samtals 205,4 m² að stærð.   
Góðarleigutekjur - fjárfestingartækifæri.

Framhúsið er með skráð byggingarár 1903 og er tvílyft timburhús á háum steyptum grunni sem skiptist þannig að í suður-enda þess er ein íbúð á sér fastanúmeri, og í norðurhluta eru tvær íbúðir auk bakhúss á öðru fastanúmeri. 
Íbúðin í suður hlutanum 3ja herbergja, skráð  92,4 m² að stærð og inn í hana er gengið frá Brekkugötunni inn um sérinngang á jarðhæð, og þaðan er farið upp tröppur í íbúðina sjálfa sem á er á tveimur hæðum.  Á neðri hæðinni er eldhús, stofa og bakdyrainngangur og geymsla, og á efri hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. 

Í norður hluta hússins er íbúð á tveimur hæðum í sambærileg þeirri sem er í suðurhlutanum, lítil íbúð í kjallara og íbúð í steinsteyptu bakhúsi.  Stærri íbúðin í norðurhlutanum er 3ja herbergja, 68,0 m² og er á tveimur hæðum og inngangurinn í hana er á vesturhlið hússins (bakhlið).  Neðri hæð íbúðarinnar skiptist í forstofu, geymslu, eldhús, baðherbergi og stofu, og á efri hæð eru tvö svefnherbergi. 

Í kjallaranum undir íbúðinni er lítil íbúð, um 33 m² að stærð sem tekin var í gegn fyrir nokkrum árum.  Inn í hana er sérinngangur frá Brekkugötunni og þar er eldhús og stofa í einu alrými, baðherbergi og eitt svefnherbergi.   

Á baklóðinni stendur svo steinsteypt stakstætt hús á einni hæð, sem er 57 m² að stærð með skráð byggingarár 1922.  Eignin er skráð sem iðnaðarhúsnæði en hefur verið nýtt sem íbúð síðustu áratugina og innréttuð sem slík. 
Lóðin undir syðri íbúðinni er eignarlóð og lóðin undir nyrðri íbúðinni er eignarlóð að 40,51%  

Tími er kominn á ýmislegt viðhald við húsið, en allar íbúðirnar eru í langtímaleigu.  
Áhugasömum er ráðlagt að skoða eignina vandlega og leita sér liðsinni fagmanna við skoðun.

Um er að ræða áhugaverða eign í hjarta bæjarins, góðar leigutekjur og stór lóð sem er að hluta til eignarlóð.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.