Fjölnisgata 1a eignarhluti 101 - Vel staðsett 231,9 m² iðnaðarbil, vesturendi og með þremur innkeyrsluhurðum.
Eignin er staðsett á áberandi stað og með gott auglýsingagildi. Neðri hæðin er 194,2 m² að stærð og er loft tekið upp í rúmlega helming.
Þrjár innkeyrsluhurðar og möguleiki að keyra í gegn. Tvær á norðurhliðinni og ein á suður hliðinni. Gönguhurð er í annarri hurðinni að norðan.
Járn hringstig er upp á milliloft sem er skráð 37,7 m² en nýtanlegir fermetrar eru mun fleiri. Loftið skiptist herbergi með lítilli innréttingu, snyrtingu og geymslur. Rýmið undir milliloftinu er í dag lager, kaffistofa og snyrting.
Annað- Sér hitaveitumælir og sér rafmagnsmælir.
- Möl er í stærstum hluta lóðar.
- Mögleiki er að skipta eigninni upp í minni einingar
- Hér er um að ræða eign sem hentað getur fyrir fjölbreyttan rekstur- Eignin er í einkasölu