Mjög gott atvinnuhúsnæði með mikilli lofthæð og stórum innkeyrsluhurðum á efri hæðinni við Njarðarnes 1 - stærð 318,8 m² auk millilofts.
Hér er um að ræða húsnæði sem hentar fyrir ýmsan rekstur og er með mikið auglýsingagildiEignin er stálgrindarhús sem byggt er ofan á steypta neðri hæð.
Eignin skiptist í afgreiðslu, snyrtingu, kaffistofu og ræstikompu og sal með tveimur innkeyrsluhurðum.
Afgreiðsla, snyrting, kaffistofa og ræstikompa eru með flísum á gólfi. Sér göngurhurð er á austurhliðinni og stór innkeyrsluhurð með miklum gluggum á norðurhliðinni. Úr afgreiðslunni er breiður járnstigi upp á milliloft sem nær á milli þriggja sperrubila, ca 80-90 m².
Salurinn er með flísum á gólfi, tveimur stórum rafdrifnum innkeyrsluhurðum og tveimur gönguhurðum. Innst í salnum er járnstigi upp á milliloftið.
Fyrir framan er malbikað bílaplan.
Milli eignarhluta á efri hæðinni fyrir framan húsið er niðurgrafin tankur fyrir úrgangsolíu.
Annað- Eignin er ca 15 metrar á dýpt og hæð upp í mæni er um 7 metrar.
- Sér hitaveita og sér rafmagn.
- Gott aðgengi.
- Eignin er með skráð byggingarár árið 2000.
- Eignin er í leigu til apríl 2027
- Engin vsk-kvöð.
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.