Mjög gott atvinnuhúsnæði með mikilli lofthæð og stórum innkeyrsluhurðum á efri hæðinni við Njarðarnes 1, vestur endi - stærð 318,8 m²
Hér er um að ræða húsnæði sem hentar fyrir ýmsan rekstur og er með mikið auglýsingagildi.Eignin er stálgrindarhús sem byggt er ofan á steypta neðri hæð.
Eignin er einn stór salur með mikilli lofthæð, þremur stórum innkeyrsluhurðum og tveimur gönguhurðum
Fyrir framan er malbikað bílaplan.
Milli eignarhluta á efri hæðinni fyrir framan húsið er niðurgrafin tankur fyrir úrgangsolíu.
Annað- Eignin er ca 15 metrar á dýpt og hæð upp í mæni er um 7 metrar.
- Sér hitaveita og sér rafmagn.
- Gott aðgengi.
- Eignin er með skráð byggingarár árið 2000.
- Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega
- Möguleiki er að fá eignina leigða - aðeins langtímasamningur.
- Engin vsk-kvöð.
- Eignin er í einkasölu