Elísabetarhagi 1 íbúð 202 , 600 Akureyri
54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
85 m2
54.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
44.950.000
Fasteignamat
50.950.000

Elísabetarhagi 1 íbúð 202 - Rúmgóð og skemmtilega skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftublokk í Hagahverfi - stærð 85,5 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu sem og sér geymsla í sameign.     

Nánari lýsing:
Forstofa og gangur eru með vínylparketi á gólfi. Opið fatahengi á gangi. 
Eldhús, falleg hvít plastlögð innrétting með bekkplötu úr viðarlíki og hvítum flísaþiljum á milli skápa. Uppþvottavél er innbyggð í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Vínylparket á gólfi og borðkrókur með útsýnisglugga til suðurs.
Stofan er rúmgóð með vínylparketi á gólfi. Þaðan er gengið út á svalir. 
Svefnherbergi eru tvö, bæði með fataskápum og vínylparketi á gólfum. 
Baðherbergi með flísalögðum sturtuklefa og upphengdu wc. Flísar á gólfi og ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 

Eigninni fylgir sér geymsla á jarðhæð sem er skráð 6,6 m².

Annað:
- Loftskiptikerfi
- Gólfhiti í öllum rýmum íbúðarinnar. 
- Mynd dyrasími
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara
- Yfirbyggt leikskýli á sameiginlegri baklóð
- Snjóbræðslukerfi er lagt í stétt framan við húsið. 
 
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.