Lindasíða 47 íbúð 103 , 603 Akureyri
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
114 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
51.250.000
Fasteignamat
63.050.000

Lindasíða 47 íbúð 103 - Falleg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með bílskúr í Síðuhverfi - Stærð 114,7 m².
Vel staðsett eign í göngufjarlægð við leik- og grunnskóla sem og íþróttasvæði Þórs. 


Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr. 

Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er opið og skemmtilegt, spónlagðir skápar með ljósri bekkplötu. Harðparket á gólfi.
Stofa er nokkuð rúmgóð með stórum og gluggum til suðurs og austurs. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö og eru bæði með góðum skápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með dökkri innréttingu undir vask, wc og baðkari með sturtutækjum. Ljósar flísar á gólfi og veggjum. 
Þvottahús er nokkuð rúmgott, þar er stæði fyrir þvottavél og þurrkara, í dag er þvottahús að hluta notað sem svefnherbergi. Flísar eru á gólfi.
Geymsla er í sameign við enda bílskúrs, þar er gólf lakkað. 
Bílskúr, 22,7 m², er með lökkuðu gólfi, þar eru hillur og innrétting í enda bílskúrs. 

Annað
- Ljósleiðari tilbúinn til notkunar
- Gólfhiti
- Nýlegt harðparket á helstu rýmum eignarinnar. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.