Námuvegur 6, Ólafsfirði
Iðnaðar og geymsluhúsnæði, samtals 695 m² á 1.710,3 m² lóð með góðri aðkomu á Ólafsfirði.Eignin er á tveimur fastanúmerum en opið er á milli þeirra, gönguhurð.
Iðnaðarhlutinn er einangrað stálgrindarhús, skráð 401,8 m² að stærð og skiptist í stóran sal, kaffistofu, tvö lager herbergi, snyrtingu og skrifstofu. Salarrýmið er mjög rúmgott. Þar er mjög góð lofthæð í um helming og tvær stórar rafdrifnar innkeyrsluhurðar, ca 3x3.
Gólf í salnum hefur verið flota og lakka að stærstum hluta. Dúkur er á gólfi í kaffistofu, lagerherbergjum, snyrtingu og á skrifstofu. Hvít innrétting er á kaffistofu.
Geymsluhlutinn er skráður 293,2 m² að stærð og er eitt opið rými, óeinangrað og klætt með bárustáli. Gólf er steypt og unnið. Innkeyrsluhurð er ca 3x4.
Möguleiki er að kaupa einkahlutafélagið sem á húsið
Eignin er í einkasöluUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.