Smáratún 7, 606 Akureyri
99.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
9 herb.
370 m2
99.900.000
Stofur
3
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1994
Brunabótamat
174.250.000
Fasteignamat
84.300.000

Smáratún 7 á Svalbarðsströnd - Stórt og virðulegt steypt einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr. Húsið er á einu fastanúmeri en búið er að loka á milli hæða og skipta húsinu upp í þrjár íbúðir en auðvelt er þó að opna aftur. Heildarstærð er skráð 370,5 m² og byggingarár þess er 1994.

Húsið skiptist með eftirfarandi hætti:
Efri hæð:
Rúmgóð 4ra herbergja íbúð auk bílskúrs samtals 200,5 m² að stærð og þar af telur bílskúr 41,2 m²
Neðri hæð: Hefur verið skipt upp í tvær útleiguíbúðir, annars vegar 2ja herbergja íbúð og hins vegar 3ja herbergja íbúð. 

Efri hæð skiptist í: forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, gang og bílskúr

Forstofa er flísalögð og með góðu skápaplássi.
Eldhús er með flísum á gólfi og milli skápa. Dökk spónlögð viðarinnrétting og þar er bakaraofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Góður borðkrókur í eldhúsi.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart rými með stórum gluggum. Parket með fiskibeinamunstri á gólfi og innfelld lýsing í lofti. Falleg kamína í stofunni. Úr borðstofunni er gengið út á steyptar suður svalir. 
Þrjú svefnherbergi eru öll með parketi á gólfi og hvítum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er góð hvít innrétting, hornbaðkar og sturta. 
Bílskúr er með flísum á gólfi, rafdrifinn hurðaopnari á innkeyrslhurð og inngönguhurð er frá steyptri verönd við aðalinngang. Tengi fyrir þvottavél er inn í bílskúr.

Neðri hæð skiptist í tvær íbúðir sem báðar eru með sér inngangi.  Annars vegar 3ja herbergja íbúð og hins vegar tveggja herbergja íbúð, sem hefur verið útbúin úr geymslurýmum á teikningu. 

2ja herbergja íbúðin skiptist í eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og stóra geymslu
Eldhús er með nýlegri hvítri innréttingu með viðarbekkplötu og dúk á gólfi.
Stofa er með dúk á gólfi og gluggum til tveggja átta. Úr stofu er hurð út í garð.
Svefnherbergi er rúmgott og með dúk á gólfi. Úr svefnherbergi er gengið inn í geymsluna.
Baðherbergi er með dúk á gólfi og sturtu. Nýleg hvít innrétting með stæði fyrir þvottavél. 
Geymsla eru tvö útgrafin en óklárðu rými, mjög rúmgóð. Gengið er inn í geymsluna úr svefnherberginu. 

3ja herbergja íbúðin skiptist í eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. 
Eldhús er með hvítri innréttingu og plastparketi á gólfi.
Stofa er með plastparketi á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö og eru bæði með plastparketi á gólfi og hvítum fataskápum
Baðherbergi er með flísar á gólfi og hvítri innréttingu. Flísalögð sturta og opnanlegur gluggi. Tengi fyrir þvottavél er inn á baði. 
Geymsla er inn af eldhúsinu. 

Lóðin er stór, eða 750 m² og fyrir framan húsið er bílastæði með möl í og sunnan við húsið er hægt að keyra niður með húsinu og þar er einnig bílastæði.  Stór grasflöt er austan við húsið.

Annað:
- Mikið og skemmtilegt útsýni.
- Stutt í skóla og leikskóla.
- Útleigumöguleikar í kjallara - þó er rétt að taka fram að ekkert liggur fyrir um hvort umrædd nýting samrýmist kröfum opinberra aðila, eins og heilbrigðis og byggingaryfirvalda, enda kjallarinn skráður að hluta sem geymsla.
- Stór garður.
- Auðvelt er á að opna aftur milli hæða. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.