Smárahlíð 4 íbúð 301, 3ja herbergja íbúð á 3ju hæð (efstu), með góðu útsýni. - Stærð 77.0 m²Eignin skiptist í forstofu, hol/gang, eldhús, stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og tvær geymslur, eina innan íbúðar og eina á jarðhæð.Forstofa er með plastparketi á gólfi, þar inn af er geymsla, með fatahengi.
Hol/gangur er með plastparketi á gólfi og þaðan er gengið inn í öll rými íbúðarinnar.
Eldhúsið er með upprunalegri viðar innréttingu, flísum milli skápa og plastparketi á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi, wc, sturtuklefa, ljósri upprunalegri innréttingu og stæði fyrir þvottavél.
Svefnherbergin eru tvö bæði með plastparketi á gólfi og annað þeirra með fimmföldum fataskáp.
Stofan er með plastparketi á gólfi, og þaðan er gengið út á rúmgóðar suður svalir með góðu útsýni.
Sérgeymsla er í sameign.
Annað:- Vel staðsett eign, stutt er í leik- og grunnskóla.
- Stutt er í íþróttasvæði Þórs, sem og Sunnuhlíð
- Í sameign er hjóla- og vagnageymsla sem og þurrkherbergi.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.