Langholt 28 - Fallegt 6 herbergja einbýli með innbyggðum bílskúr í Holtahverfi - stærð 211,7 m², þar af er bílskúr skráður 34 m²
** Skoða skipti á minni eign **
Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, eldhús, stofu, sólskála, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, geymslur og bílskúr.
Forstofa er með dökkum flísum á gólfi. Útidyrahurð hefur verið endurnýjuð.
Eldhús, spónlögð hvíttuð eikar innrétting með svörtum mosaík flísum á milli skápa. Nýlegt helluborð og ofn. Dökkar flísar eru á gólfi. Stæði er fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Stofa er björt og með stórum gluggum. Gegnheilt parket á gólfum. Úr stofu er gengið inn í sólskála.
Sólskáli er með flísum á gólfi, ofn og kamínu. Þak yfir sólskála hefur verið endurnýjað, sett nýtt járn og einangrað og klætt að innan. Þá var einn útveggur einnig einangraður. Úr sólskálanum er gengið út á sólpall framan hússins.
Svefnherbergin eru fjögur. Þrjú herbergi eru á efri hæð, öll með gegnheilu eikarparketi á gólfum og tvö með spónlögðum eikar fataskápum. Inn af þriðja svefnherberginu er fataherbergi með flísum á gólfi. Fjórðar svefnherbergið er á neðri hæðinni, þar eru flísar og parket á gólfum. Ekki er full lofthæð í því herbergi.
Baðherbergin eru tvö. Á efri hæð er eru ljósar flísar á gólfum og hluta veggja, baðkar með sturtutækjum, hvít innrétting og opnanlegur gluggi. Baðherbergi á neðri hæðinni er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc og sturtu. Rafmagnshitalögn í gólfi
Þrjár geymslur eru á neðri hæðinni, tvær inn af herberginu og ein inn af í bílskúrnum.
Þvottahús er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsinu.
Bílskúr er skráður
34,0 m² að stærð og þar er epoxy efni á gólfi og rafdrifin innkeyrsluhurð.
Annað: - Hellulögð verönd með timbur skjólveggjum og heitum potti. Hitalagnir eru undir hellunum, kynnt með affalli af húsi.
- Nýr pappi bræddur á þakið árið 2022
- Tröppur heim að húsi endursteyptar 2023
- Ljósleiðari er tilbúin til notkunar.
- Eignin er stærri en skráðir fermetrar segja til um.
- Eignin er laus til afhendingar 1.10.2024- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.