Öldugata 12b , 621 Dalvík
53.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
80 m2
53.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
16.450.000

Öldugata 12b - Vel skipulögð 3ja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð í byggingu á Árskógsandi - stærð 80,0 m²

Eignin selst fullbúin og verður til afhendingar haust 2024.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Eigninni fylgir sér geymsla skráð 6,2 m² að stærð staðsett í sameignlegu rými milli íbúða A og B


* Allar innréttingar og fataskápar eru frá Ikea og er hvítt að lit.
* Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu.
* Vínyl parket er á öllum gólfum íbúðar fyrir utan forstofu og baðherbergi, þar verða gráar 60*60 flísar
* Hljóðdempandi dúkur og innfelld led lýsing er eldhús, stofu og forstofu.  
* Loft eru tekin upp í eldhúsi, stofu og forstofu. 
* Hiti er í öllum gólfum og handklæðaofn á baðherbergi.
* Ídráttarrör eru fyrir mögulegan heitan pott á baklóð.
* Snjóbræðsla, lokað kerfi er í stétt fyrir framan.
* Sameignleg hjóla- og vagnageymsla

Íbúðirnar í húsinu falla allar undir skilmála Hlutdeildarlána.


Skilalýsing eignar, 

Húsið verður byggt samkvæmt teikningum gerðum af Arkibygg og hönnuð af Ástríði Birnu Árnadóttur arkitekt og Stefaníu Helgu Pálmadóttur byggingafræðingi.
Byggingaraðili er EGO hús ehf á Akureyri.

Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar árið 2024 og lóð frágengin byggingarstigi 7 (ÍST 51:2001) sumarið 2024.
Húsið er þriggja íbúða raðhús á einni hæð ásamt sameign. Í sameign eru sérgeymsla fyrir hverja íbúð, ásamt vagna og hjólageymslu.
Húsið er timbureiningahús, einangrað með 145 mm steinull í útveggjum. Undirstöður eru steyptar í plast einangrunarkubba. Undir gólfplötu er einangrað með 4” plasteinangrun. Gólfplata er steypt, pússuð með flotbretti og rétt af með flotmúr.
Þak er einhalla til norðurs, burðarvirki úr timbri, einangrað með 250mm steinull (reglugerð 220mm). Þak er með 2 lögum af asfalt dúk.
Innveggir eru klæddir einu lagi af viðarplötum (festa fyrir skrúfur) og gips þar yfir. Allir veggir og loft verða sandspörsluð þar sem við á og fullmáluð í ljósum lit samkvæmt vali hönnuðar.
Loft: Upptekin loft í alrými með innfeldum ljósum og hljóðdempunardúk. Önnur loft niðurtekin.
Gólfefni: Gólf í forstofu og baðherbergi verða flísalögð. Önnur gólf íbúðar verð með vönduðu vínyl parketi.
Innihurðir verða yfirfelldar með stálhandföngum.
Í eldhúsi verða hvítar sprautulakkaðar og/eða plastlagðar. Á milli bekkja og efri skápa í eldhúsi verða flísar eða fiber plötur með t.d. steypuáferð. Bekkjarplötur verða harðplast plötur.
Spanhelluborð og viftar. Bakaraofn með blæstri. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur og frystir fylgja með við sölu eignar. Ábyrgð raftækja er 5 ár.
Fataskápar: Framhliðar fataskápar verða hvítar. Allar skúffur og skápahurðir verða með ljúflokum af viðurkenndri gerð.
Baðherbergi verður með sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Stórt (aflangt) niðurfall í gólfi og glerhlið niður í gólf. Í kringum sturtu koma flísar. Innrétting og skápar verða hvít hálfmatt.
Hreinlætis-og blöndunartæki í húsinu verða af viðurkenndri gerð. Varmaskiptir fyrir neysluvatn verður uppsettur og tengdur.
Gólfhitakerfi er í öllum gólfum, lagt í hvert rými fyrir sig og stýring fyrir hvert rými.
Neysluvatnslagnir (rör í rör) verða lagðar í gólf að tengistað með tilheyrandi búnaði. Fráveitu- og drenlagnir lagðar samkvæmt teikningu og tengdar við fráveitukerfi. Ídráttarrör verða fyrir mögulegan heitan pott.
Rafmagn: Röralagnir ásamt tilheyrandi dósum fyrir rafmagn og síma/internet lagt í veggi og loft samkvæmt
teikningu. Raf og síma-/netlagnir verða fullfrágengnar. Rafmagnstafla verður fullfrágengin. Rör verður
lagt frá aðaltöflu að bílastæði fyrir rafhleðslu á bifreiðum.

Öll ljós íbúðar verða fullfrágengin ásamt lýsingu undir efri skápum í eldhússinnréttingu. Upptekin loft í alrými með innfeldum ljósum.
Útiljós samkvæmt teikningu verða uppsett og frágengin.
Útveggir verða klæddir að utan með litaðri álklæðningu og timburklæðningu að hluta samkvæmt vali hönnuða. Hurðir og gluggar eru úr timbri og klætt lituðu áli að utan. Tvöfalt gler.
Lóðin verður jöfnuð og sáð í grasifræi. Stéttar og verandir verða steyptar, en bílaplön malbikuð. Snjóbræðslukerfi verður í stéttum og veröndum. Snjóbræðslukerfi verður lokað kerfi, áfyllt frostlegi og tilbúið með varmaskipti.
Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð.
 
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar)
 
Ath. minniháttar sprungur geta myndast á máluðum flötum nýbygginga á fyrstu mánuðum eftir afhendingu og telst slík sprungumyndun ekki til ágalla.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.