Geirþrúðarhagi 4a íbúð 203 - Vönduð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu (2020) fjölbýlishúsi í Hagahverfi - stærð 66,3 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sér geymsla fylgir íbúðinni skráð 5,4 m² að stærð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Forstofa er með harð parketi á gólfi og opnu hengi.
Eldhús, vönduð plastlögð innrétting frá GKS með innfelldum ísskáp með frysti og uppþvottavél.
Stofa og eldhús eru í opnu þar sem harð parket er á gólfi. Rennihurð er úr stofunni út á steyptar suður svalir, skráðar 5,7 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harð parketi á gólfi og plastlögðum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,9 og 11,9 m².
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc og walk-in sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sér geymsla fylgir íbúðinni, skráð 5,4 m² að stærð með gráum flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á neðri hæðinni.
Annað- Hljóðdempandi plötur eru í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.
- Hvítir led kastarar í loftum fylgja með við sölu eignar.
- Eignin er laus til afhendingar apríl - maí 2025
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.