Aðalgata 30 , 625 Ólafsfjörður
30.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
5 herb.
126 m2
30.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1964
Brunabótamat
56.800.000
Fasteignamat
23.550.000

Aðalgata 30 - Vel staðett 5 herbergja enda raðhúsaíbúð á 2. hæðum á horni Aðalgötu og Ægisgötu á Ólafsfirði - stærð 126,6 m²

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning


Eignin er skráð 126,6 m² að stærð og skiptist með eftirtöldum hætti.
Neðri hæð:
Tveir inngangar, þvottahorn, geymsla, hol, baðherbergi og þrjú svefnherbergi.
Efri hæð: Eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi. 

Neðri hæð var mikið endurnýjuð á árunum 2007-2008. Þá var skipulagi breytt, settur gólfhiti, ný gólfefni, raflagnir endurnýjaðar og sett upp ný loftaklæðning. Þá voru neysluvatnslagnir endurnýjaðar í allri íbúðinni á sama tíma.

Forstofa er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Ur forstofu er gengið inn á hol með flísum á gólfi og við endann er hurð út á steypta verönd og parket lagður stigi upp á efri hæðina.
Eldhús, ljós beyki innrétting með grárri bekkplötu og flísar á gólfum. 
Stofa og borðstofa eru í opnu rými þar sem loft eru tekin upp og plast parket á gólfum Hurð út á steyptar suður svalir. Skemmtilegt útsýni er úr stofunni inn sveitna. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á neðri hæðinni og eitt á efri hæðinni og öll með plast parketi á gólfi. Í herbergi á efri hæð er ljós innrétting og var það nýtt sem geymsla/búr.
Baðherbergin eru tvö, eitt á hvorri hæð. Á neðri hæðinni eru flísar á gólfi, hvít innrétting, upphengt wc, sturtuklefi og opnanlegur gluggi. Á efri hæðinni eru flísar á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting, wc, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. 
Geymsla er innan íbúðar og er hún staðsett undir stiga. Einnig er köld geymsla við hliðina á forstofu. 

Annað
- Gler í gluggum í stofu og borðstofu var endurnýjað fyrir um 2 árum. 
- Gólfhiti var lagður í öll rými á neðri hæðinni fyrir utan geymslu árið 2007.
- Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar árið 2007.
- Raflagnir á neðri hæðinni voru endurnýjaðar árið 2008
- Nýleg vatnsinntök
- Frárennsli frá húsi var endurnýjað á sama tíma og inntök.
- Steypt stétt með hita í er frá forstofu að norðanverðu, með austur hlið hússins og að steyptu bílaplani sem einnig er með hita í. 
- Steypt verönd með og timbur skjólveggir. Heiturpottur/skel er á veröndinni.
- Stutt í leikskóla, grunnskóla og sundlaugina.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.