Seljahlíð 9f - Falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með 39,3 m² bílskúr en heildarstærð eignar er 152,1 m².
- Stór steypt verönd með heitum potti og timburskjólveggjum -
- Stórt bílaplan framan við hús fyrir 4 bíla -
- Nýtt harðparket lagt á íbúðina fyrir 2 árum -
- Geymsluloft yfir allri íbúðinni - Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing: Forstofa er með steinteppi á gólfi og opnu hengi. Hiti er í gólfi, stjórnað í gegnum ofn.
Í eldhúsi er ljós sprautulökkuð innrétting og nýlegt harðparket á gólfi. Electrolux ofn og helluborð og uppþvottavél frá Whirlpool sem fylgir með. Háfur blæs út.
Stofa og hol eru með parketi á gólfi. Úr stofu er hurð út á stóra steypta verönd með heitum potti. Hitalagnir eru í hluta af verönd.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum og á gangi fyrir framan barnaherbergi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Þar eru flísar á gólfi og hluta veggja, hvít og spónlögð eikar innrétting, upphengt wc, handklæðaofn og rúmgóð flísalögð walk in sturta. Hiti er í gólfi.
Þvottahús er með epoxy efni á gólfi, hvítri innréttingu og hurð út á baklóð.
Geymsla er inn af þvottahúsi en þar eru hillur á vegg og fellistigi í loftinu upp á geymsluloft.
Bílskúr er skráður 39,3 m² að stærð og er með nýlegri rafdrifinni innkeyrsluhurð sem er með gönguhurð í. Hurð er úr bílskúr út á baklóð. Fyrir framan er bílaplan fyrir 4 bíla, hitalagnir eru í tveimur stæðum.
Annað - Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu 15 árum, innihurðar, baðherbergi, gluggalistar, hurð og gluggastykki í stofu, frárennsli, baklóð o.fl.
- Árið 2018 var steypt um 90 m² verönd á baklóð og lóðin girt af með timburskjólveggjum. Hitalagnir eru í hluta af verönd.
- Heitur pottur er á verönd og fylgir með við sölu (rafmagnspottur sem breytt var í hitaveitupott)
- Hitalagnir eru í hluta af bílaplan og verönd, lokað kerfi.
- Ljósleiðari
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.