Austurbrú 6 íbúð 205 - Glæsileg 2ja herbergja íbúð í vönduðu og vinsælu lyftuhúsi með stæði í bílageymslu - Stærð 56,8 m².
Einstaklega vel staðsett íbúð við Pollinn, í hjarta Akureyrar og í göngufæri frá miðbænum.- Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings - Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Forstofa, eldhús og stofa í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi, sér geymsla og stæði í bílageymslu.
Forstofa er með góðum hvítum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús er með sérsmíðaðri hvítri innréttingu frá Brúnás með quartz borðplötu, ísskápur sem og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja með við sölu.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi og er þar harðparket á gólfi. Gengið er út á 3,6 m² svalir, af svölum er útsýni á meðal annars Vaðlaheiðina til austurs.
Svefnherbergi er með góðum hvítum fataskáp, glugga til suðurs og harðparket á gólfi.
Baðherbergi er með sérsmíðaðri hvítri innréttingu frá Brúnás og quartz borðplötu, þar er walk-in sturta, upphengt wc og handklæðaofn, flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Sér
geymsla, 8,0 m² er í sameign, þar er innstunga og opnanlegur gluggi.
Sér
stæði er í bílageymslu, þar er möguleiki á að setja innstungu fyrir rafmagnsbíla.
Þvottahús er í kjallara en það er sameiginlegt með einni annarri íbúð.
Annað:- Íbúðin er öll nýmáluð
- Nýjar screen gardínur í öllum gluggum.
- Gólfhiti og hitastillir er í hverju herbergi.
- Hljóðeinangrandi gler er í öllum gluggum.
- Innfelld lýsing.
- Snjóbræðsla er í bílageymslurampi.
- Einstaklega snyrtileg sameign.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.