Þórunnarstræti 130 íbúð 001 , 600 Akureyri
57.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
91 m2
57.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1966
Brunabótamat
37.700.000
Fasteignamat
39.150.000

Þórunnarstræti 130 - Björt og mjög mikið endurnýjuð 3 herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli á Brekkunni - stærð 91,9 m²
Eignin hefur verið endurgerð svo til frá a til ö
  • Ný eldhúsinnrétting
  • Nýtt baðherbergi.
  • Ný gólfefni
  • Gólfhiti
  • Allar vatnslagnir og fráveitulagnir endurnýjaðar út fyrir hús
  • Ný hitaveitugrind
  • Nýjar innihurðir
  • Nýtt gluggastykki með þreföldu gleri og rennihurð er snýr út að götu
  • Raflagnir endurnýjaðar og allt lagnaefni

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sér geymsla er í sameign.

Forstofa og hol eru með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Eldhús er með góðri grárri innréttingu, þar er spanhelluborð, ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél og ísskapur. Flísar eru milli skápa. Harðparket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð, stór gólfsíður gluggi með rennihurð snýr til vesturs, þaðan er gengið út á timbuverönd með steyptum skjólveggjum. Harðparket er á gólfi í stofu
Svefnherbergin eru tvö þau eru bæði með góðum innbyggðum fataskápum og harðparketi á gólfi. 
Baðherbergi er einkar glæsilegt, þar er ljós innrétting og góður speglaskápur. Sturta er walk- in með innbyggðum sturtutækjum, wc er upphengt, handklæðaofn og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Sér geymsla er í sameign á hæðinni, skráð 9,6 m² að stærð. Þar er lakkað gólf og hillur.

Annað:
- Aðalinngangur fyrir húsið er á vestur hliðinni og þar eru malbikuð stæði, einnig er hægt að koma aftan að húsinu, þar er perla í bílaplani og inngangur.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Snyrtileg sameign.
- Sameiginleg hjóla og dekkjageymsla er í sameign. 
- Íbúðin er í leigu út nóvember.
- Húsgögn sem eru til staðar við skoðun, geta fylgt með eigninni.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.