Baldursnes 2 - til leigu , 603 Akureyri
Tilboð
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
1 herb.
1001 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
427.000.000
Fasteignamat
241.750.000

Fasteignsalan Hvammur 466 1600

Til leigu vel staðsett atvinnuhúsnæði sem hentar fyrir fjölbreyttan rekstur, jafnt iðnað sem verslun við Baldursnes 2 - samtals 1.001,6 m² að stærð og lóðin í kringum húsið er 3.507,1 m².


Hér er um að ræða húsnæði sem er með mikið auglýsingagildi - Góð aðkoma er að húsinu og næg bílastæði.

Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.

Eignin skiptist í um 360 m² verslunarrými með stórum gólfsíðum gluggum og annað eins í lagerrýmum sem skipt er upp í þrjú rými.
Í rúmlega helming verslunarrýmis er mikil lofthæð og hentar því vel sem sýningarsalur. Steinteppi er á gólfi í verslun og öllum rýmum á efri hæð fyrir utan baðherbergi og þvottaherbergi, þar eru flísar.
Lagerrýmin eru þrjú, tvö með mikilli lofthæð og eitt með hefðbundinni. Tvöfaldar hurðar eru á milli allra rýmanna og úr rýmunum inn í verslun. Innkeyrslu- og gönguhurðar eru inn í öll lagerrýmin (bakatil), um 3,5 metrar á breidd og um 2,7 metrar á hæð.
Efri hæð er skráð um 280 m² og skiptist í hol, þrjár skrifstofur, fundarherbergi, sal, kaffistofu og tvær starfsmannaaðstöður með baðherbergjum þar sem eru upphengd wc og sturtur. 
Um 70 m² salur er á efri hæð. Þar eru tvær tvöfaldar hurðar er tengjast lagerrýmum á neðri hæð.

Lóð er að stærstum hluta malbikuð.  

Langtíma leiga er í boði, óskað er eftir leigutilboði

Frekari upplýsingar veitir Bubbi 466 1600 / 862 0440 eða [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.