Lækjarvellir 2b - Nýlegt og vel innréttað atvinnuhúsnæði á stórri lóð á iðnaðarsvæði í Hörgársveit - stærð 331,8 m²Eignin er stálgrindarhús og var tekið í notkun árið 2023.
Neðri hæð, 267,7 m² og skiptist í sal með þremur stórum innkeyrsluhurðum, forstofu, þvottahús, baðherbergi, kaffistofu og starfsmannaðstöðu.
Efri hæð, 64,1 m² og skiptist í rúmgott hol, snyrtingu og skrifstofurými.
Salurinn er með gráu epoxy efni á gólfi og góðri lofthæð. Salurinn er skv. teikningum 196,6 m² að stærð.
Þrjár stórar stórar innkeyrsluhurðar og möguleiki á gegnum keyrslu.
Allar hurðarnar eru 4,3 metra háar. Breiddin er 3,97 - 4,98 metrar.
Opið óskráð geymsluloft, um 20 m² er yfir hluta og undir því er sérsmíðað vinnuborð.
Forstofa er með gráu epoxy á á gólfi. Veglegur járnstigi er úr forstofunni og upp á efri hæðina.
Kaffistofa er með gráu epoxy á gólfi og vandaðri eikarlitaðri innréttingu.
Baðherbergi er á neðri hæðinni með epoxy á gólfi, grárri innréttingu, upphengdu wc, sturtuklefa og opnanlegum glugga.
Snyrting er á efri hæðinni með vínyl parketi á gólfi, grárri innréttingu, upphengdu wc og opnanlegum glugga.
Hol og skrifstofurými á efri hæðinni eru með vínyl parketi á gólfi.
Eigninni fylgir sérafnotaréttur á lóð skv. eignaskiptasamningi, 1.458 m²
Fyrir framan húsið er lóðin malbikuð en með suðurhliðinni og á bakvið er möl
Á eigninni hvílir vsk-kvöð og er gert ráð fyrir að hún sé yfirtekin auk kaupverðs, þ.e. kaupverð er tiltekið án vsk kvaðar.
Eignin er í einkasölu Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.