Njarðarnes 12 eignarhluti 204 - Vandað og vel staðsett geymslu- og iðnarðarhús með góðri lofthæð og stórri innkeyrsluhurð - stærð 175,0 m² þar af er milliloft 31,1 m²Eignin skiptist í rúmgóðan sal með gráu epoxy efni á gólfi, góðri lofthæð og stórri rafdrifinn innkeyrsluhurð, um 3,8m á breidd og 4,2m hæð.
Salurinn erum 20m á lengd og um 6,3m á breidd.
Innst í salnum mjög góð hvít sérsmíðuð innrétting með góðu skápaplássi og skolvask, snyrting og kaffistofa. Á snyrtingu er epoxy efni á gólfi og hluta veggja, wc og hvít innrétting
Kaffistofa er með epoxy efni á gólfi, hvítri innréttingu, útsýnisgluggum til norðurs og hurð út á norður svalir.
Stálstigi er upp á milliloftið sem er eitt opið rými með góðri lofthæð, gluggum yfir salinn og útsýnisgluggum til norðurs út fjörðinn. Epoxy efni er á gólfi. Gólfplata á millilofti er steypt og hluti af burðarkerfi hússins.
Húsið er steypt og klætt að utan með 50mm PIR samlokueiningum (micro áferð að utan) er skrúfast utan
á steypta veggi.
Þak er klætt með 160/45 (trapiza) steinullar samlokueiningum - einingarnar festast á límtrésbita.
Gluggar og inngangshurðir eru úr timbri/ál.
Ein hitaveitugrind/aflestrarmælir er fyrir allt húsið og er staðsetning mæla í sameiginlegu tæknirými.
Aðaltafla rafmagns og aflestrarmæla er staðsett í sameiginlegu tæknirými en greinatafla er í eigninni.
Annað- Góð aðkoma
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning
- Á eigninni hvílir vsk-kvöð -Gert er ráð fyrir að hún sé yfirtekin auk kaupverðs, þ.e. kaupverð er tiltekið án vsk kvaðar.
- Eignin er í einkasöluUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.