Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Lækjarvellir 7 eignarhluti 02 110 - Nýlegt geymsluhúsnæði, norður endi í Hörgársveit - stærð 50,5 m² - Möguleiki er á millilofti/geymsluhillu.Húsið er límtréshús reist ofan á steypta plötu og klætt að utan með yleiningum bæði veggir og þak.
Rýmið er um 8 metrar á lengd og um 6 metrar á breidd.
Vegghæð við útvegg er um 4 metrar og rúmmir 6 metrar innst.
Innkeyrsluhurðin er rafdrifin, um 3 metrar á breidd og 3,5 metrar á hæð.
Inngöngudyr er við hlið innkeyrsluhurðar.
Gólf er steypt og lakkað.
Innst er gert ráð fyrir snyrtingu.
3ja fasatengill.
Sér rafmagnsmælir og sameiginlegur hitamælir.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.