Keilusíða 12 íbúð 103 - Vel staðsett 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi í Síðuhverfi - Stærð 50,0 m².Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Forstofa, eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi og geymsla í sameign.
Forstofa er með opnu fatahengi og parketi á gólfi
Eldhús er með ljósri upprunalegri innréttingu með eldavél og stæði fyrir ísskáp. Parket er á gólfi.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi, þar er gengið út á steyptar svalir er snúa til vesturs. Parket er á gólfi.
Svefnherbergið er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu undir vask, wc og baðkar með sturtutækjum. Tengi er fyrir þvottavél og góður möguleiki á að hafa þurrkara einnig inná baðherbergi. Dúkur á gólfi.
Geymsla er í sameign.
Annað:- Eignin er öll í upprunalegu ástandi og þarfnast endurbóta.
- Eignin er í útleigu og er til afhendingar í lok febrúar 2025 eða gegn yfirtöku á leigusamning.
- Eigandi hefur aldrei búið í eigninni.
- Væntanlegur kaupandi er hvattur til að skoða eignina vel.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.