Klettaborg 46 - Góð 4ra herbergja endaraðhúsaíbúð á 2.hæðum miðsvæðis á Akureyri - stærð 114,9 m²Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð 65,1 m²: Forstofa, snyrting, þvottahús, eldhús og stofa.
Efri hæð 49,8 m²: Gangur, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með flísum á milli skápa. Mjög gott skápapláss. Nýlegt span helluborð
Stofa er með parketi á gólfi, kamínu og hurð út á timbur verönd.
Baðherbergi er með ljósum flísum á gólfi og stærstum hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Snyrting er á neðri hæðinni með flísum á gólfi, wc og handlaug. Smá geymslurými er undir stigapallinum.
Steyptur parketlagður stigi er á milli hæða og járnhandrið.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og spónlögðum fataskápum. Úr hjónaherberginu er gengið út á austur svalir
Þvottahús er með flísum á gólfi, bekk með skolvask og opnanlegum glugga.
Annað- Timbur verönd er á baklóðinni og snyrtilegt garðhús.
- Timbur girðing er á lóðarmörkum sem afmarkar lóðina.
- Fyrir framan er steypt stétt og tvöfalt sorptunnuskýli.
- Sameiginlegt húsfélag fyrir Klettaborg 30-64 sem sér um snjómokstur, garðslátt o.fl. sameiginlegt fyrir lóðina. Greitt er 2x sinnum á ári kr. 20.000.-
- Vel um gengin eign á vinsælum stað, stutt í ýmsa þjónustu og Háskólann
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.