Stapasíða 3 , 603 Akureyri
134.400.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
7 herb.
335 m2
134.400.000
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1978
Brunabótamat
133.600.000
Fasteignamat
112.000.000

Fasteignasalan Hvammur  -  466-1600  -  [email protected]

Stapasíða 3 - Einbýlishús á tveimur hæðum með sambyggðum bílskúr og útleiguíbúð á neðri hæð í Síðuhverfi, heildarstærð 335,7 m². 

- Íbúð á neðri hæð, sem hefur verið endurnýjuð og er í útleigu. Flest húsgögn í þeirri íbúð fylgt með við sölu - góðir tekjumöguleikar
- Eignin er þónokkuð endurnýjuð; flest gólfefni, innihurðar, útidyrahurðar og innréttingar hafa verið endurnýjuð á sl. 5-15 árunum. 
- Steypt bílaplan fyrir framan hús.
- Virðulegt hús á góðum stað - leik- og grunnskólar í göngufæri. 


Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
- 4-5 herbergja íbúð á aðalhæð hússins sem skiptist svo:
eldhús, stofa, sjónvarpsshol, baðherbergi, forstofa, snyrting, þrjú svefnherbergi, þvottahús og bakdyrainngangur. Einnig fylgir stórt tómstundaherbergi í kjallara, geymsla í kjallara og bílskúr. 
- um 80 m² 2ja herbergja íbúð í kjallara sem skiptist svo: eldhús, stofa, svefnherbergi,  baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og forstofa.

Nánari lýsing á efri hæð:
Eldhús
var endurnýjað árið 2008. Sérsmíðuð innrétting frá Ými úr hvíttaðri eik með innbyggðum ísskáp, bakaraofni í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél og gashelluborð. Flísar á milli skápa og gott skápapláss í innréttingu. Nýlegt harðparket á gólfi.
Stofa er mjög rúmgóð og er loftið tekið upp. Nýlegt harðparket á gólfi og stórir gluggar. Úr stofu er gengið út á timburverönd með heitum potti. 
Sjónvarpsholið
er opið rými með harðparketi á gólfi en búið er að opna milli stofu og sjónvarpshols. Möguleiki er á að útbúa fjórða svefnherbergið úr sjónvarpsholinu. 
Baðherbergi var endurnýjað um 2005 og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er eikarinnrétting, upphengt wc, handklæðaofn, tveggja manna setbaðkar og flísalagður sturtuklefi. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og vélrænt útsog. 
Forstofa er með nýlegu harðparketi á gólfi. Inn af forstofu er snyrting. Þar einnig harðparket á gólfi, nýleg hvít innrétting og upphengt wc. 
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum nýlegum fataskáp frá ikea. Viðarparket er á gólfi. Hurð er úr hjónaherberginu út á timburveröndina. 
Tvö barnaherbergi sem eru bæði með viðarparketi á gólfi. Fataskápur er í öðru herberginu. 
Bakdyrainngangur er inn af eldhúsi og þar eru flísar á gólfi og nýlegur fataskápur. 
Þvottahús
er inn af bakdyrainngangi. Þar er lakkað gólf og innrétting frá HTH. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er lúga og stigi niður á neðri hæðina en einnig er hægt að fara inn um inngang á neðri hæð. 
Bílskúr er skráður 35,7 m² að stærð. Hann er kynntur með affalli af húsinu en þar er bæði heitt og kalt vatn. Nýleg rafdrifin innkeyrsluhurð. 

Nánari lýsing á neðri hæð:
Tómstundaherbergi/geymsla
 á neðri hæð er um 40 m² rými með lökkuðu gólfi. Lofthæð er um 2,25m
Geymsla með lökkuðu gólfi og hillum á veggjum.  


Nánari lýsing á útleiguíbúð í kjallara:
Forstofa 
er sameiginleg og þar er vínylparket á gólfi. Úr forstofunni er innangengt í útleiguíbúð á neðri hæð, sem og geymslu og tómstundarými sem efri hæð nýtir. 
Í eldhúsi er eldri viðarinnrétting með hvítri bekkplötu og parketi milli skápa. Vínylparket á gólfi. 
Stofan er rúmgóð, með vínylparketi á gólfi.
Svefnherbergi er með vínylparketi á gólfi og lausum fataskáp.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Þar er nýleg ikea innrétting, upphengt wc, walk-in sturta og tengi fyrir þvottavél. Vínylparket á gólfi. 

Annað:
- Rúmgóð timburverönd með heitum potti (hitaveituskel)
- Drenað hefur verið frá aðalinngangi hússins, meðfram suður- og vesturhlið hússins og að bílskúrnum. Sett upp brunndæla. 
- Stór og skemmtilegur garður
- Möguleiki er á að opna á milli hæða. 
- Frábær staðsetning í fjölskylduhverfi þar sem stutt er í grunn- og leikskóla
- Þriggja fasa rafmagn og rafhleðslustöð
- Fasteignamat 2025 er kr. 117.150.000.-

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.